Utanríkismál í kosningabaráttunni
Manage episode 450125621 series 2534499
תוכן מסופק על ידי RÚV. כל תוכן הפודקאסטים כולל פרקים, גרפיקה ותיאורי פודקאסטים מועלים ומסופקים ישירות על ידי RÚV או שותף פלטפורמת הפודקאסט שלהם. אם אתה מאמין שמישהו משתמש ביצירה שלך המוגנת בזכויות יוצרים ללא רשותך, אתה יכול לעקוב אחר התהליך המתואר כאן https://he.player.fm/legal.
Heimsglugginn fjallaði að þessu sinni um hlut utanríkis- og varnarmála í kosningabaráttunni fyrir Alþingiskosningarnar 30. nóvember. Bogi Ágústsson ræddi við Davíð Stefánsson og Piu Hansson. Davíð er formaður Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál og Pia er forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands en þau standa fyrir fundi um utanríkis- og varnarmál ásamt Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og Félagi stjórnmálafræðinga. Þar skýra 10 frambjóðendur stefnu flokka sinna og framboða. Einnig ræddu Bogi og Þórunn Elísabet Bogadóttir stuttlega um Kemi Badenoch, nýjan leiðtoga breska Íhaldsflokksins. Hún þótti nokkuð hvöss og fylgin sér í fyrirspurnatíma forsætisráðherra í gær. Þetta var í annað sinn sem hún tókst á við Keir Starmer forsætisráðherra en í síðustu viku var athygli allra á forsetakosningunum í Bandaríkjunum svo lítið var rýnt í frammistöðu hennar þá.
…
continue reading
143 פרקים