Skátar
Manage episode 400359580 series 2763209
תוכן מסופק על ידי RÚV. כל תוכן הפודקאסטים כולל פרקים, גרפיקה ותיאורי פודקאסטים מועלים ומסופקים ישירות על ידי RÚV או שותף פלטפורמת הפודקאסט שלהם. אם אתה מאמין שמישהו משתמש ביצירה שלך המוגנת בזכויות יוצרים ללא רשותך, אתה יכול לעקוב אחר התהליך המתואר כאן https://he.player.fm/legal.
Við skiljum hlaupin eftir í reyknum og færum okkur yfir í næsta viðfangsefni, en það eru skátar sem taka á móti okkur núna. Þessi hreyfing eða samtök sem mörg okkar taka lítið eftir fyrr en 17.júní ár hvert þar sem við förum á fjölfarna staði og hlustum á lúðrasveitir eða förum í hoppukastala sjálf eða með þeim sem minni eru. Hjálparsveit skáta er eitthvað sem við höfum líklegast öll heyrt, við erum kannski meðvituð um að eitthvað snýst þetta nú um útiveru, hnúta hverskonar og bláa búninga. En hvað er það að vera skáti? Hvaðan koma þessi samtök og um hvað snúast þau? Er skylda að vera ávallt skáti ef þú hefur yfir höfuð verið skáti einhvertíman? Ég fékk til mín Arnór Svarfdal skáta til að segja okkur allt það helsta, við fórum yfir söguna og auðvitað þessar spurningar sem ég er nýbúinn að þylja upp.
…
continue reading
123 פרקים